Who´s the superhero?

Ég heiti Ingibjörg Gróa Magnúsdóttir og er 1981 módel. Ég er búsett í hafnarfirðiþ Ég er að vinna í Fedex við farmaskráningu og tollskýrslugerð. Ég mun klára BA gráðu í bókmenntafræði og menningarfræði í febrúar næstkomandi.
Hvað tekur svo við, hver veit?

msn: ingibjgroa@hotmail.com
myspace: www.myspace.com/ingibjorggroa

Auglýsing

Leit

Á döfinni í Júní:

6: Byrja í Fedex

10: er með scrap námskeið í scrap, FK

24: Skrappnámskeið

26: Skrapp námskeið

JEI JEI JEI

14. janúar 2007 klukkan 00:42
Mín er loksins komin með vinnu!!!!

Hjá Eddu úgáfu við að reka verslun þeirra á suðurlandsbraut. Ég er ekkert smá sátt.

Svo er ég líka búin að ná seinasta áfanganum í skólanum. Þannig að ég er komin með BA gráðu.

Þessu verður fagnað 24 feb. þannig að allir að taka kvöldið frá því þá verður sko PARTÝ!!!

Ingibjörg
Ingibjorg Groa Magnusdottir

loksins loksins

17. nóvember 2006 klukkan 19:41
Ég veit það er ekkert smá langt síðan ég hef bloggað. En ég er bara búin að vera heima hjá ólöfu bókstaflega síðan ég varð atvinnulaus. Er að sækja um helling af vinnum og er eins og er bara á atvinnuleysisbótum.


Góðu fréttirnar eru þær að við erum öll að fara flytja í febrúar og fæ ég íbúð í bílskúrnum og fer ég því ekki að leigja í hafnarfirði.

ÉG hef ekkert getða skoðað littla kút af viti þar sem að ég er búin að vera veik og allir í kringum mig eiga börn sem hafa smitast af RS vírus og þvi hef ég bara haldið mig í burtu en ég fer að skoða hann á morgun ég hlakka ekkert smá til!!!!!

allavega Ólöf á ammæli og ætla ég því að gefa henni fulla athygli í dag.

Ingibjörg
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Engin smá nótt

02. nóvember 2006 klukkan 16:09
Lítill prins er fæddur!!

Allir að skoða á:

http://barnaland.is/barn/51912/

Kveðja
Ingibjörg 2föld auntie
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Jæja jæja

21. september 2006 klukkan 13:43
Það er bara absolutly ekkert að gera í jobbed hjá mér. Ég fékk takk fyrir að flokka reikninga í stafrófsröð í gær og smella í umslög. Mjög gaman, not. en skárra en að bíða eftir að dagurinn væri búin.

Haldið þið að mín sé ekki bara búin að fá íbúð, er að fara að leigja íbúð uppi á holti :) :) :) 50 fm og 50 þús kall á mánuð. Þetta er kjallaraíbúð og ég, mamma og Bumban erum að fara skoða hana í kvöld. Ég er ekkert smá spennt. Ég hugsa að ég flytji inn í Nóv. Sandra í scrap hooked me up en þetta er í kjallaranum hjá mömmu hennar og pabba.

En annars er ekkert annað að frétta nema að ég vinn eins og mófó as usuall. ekkert nýtt það. Svo þarf ég að fara byrja að lesa námsefnið í skólanum.

Elsku Bára mín er að fara til the big UK á morgun. Ég öfuna hana ekkert smá. Góða ferð ástin mín og skemmtu þér fyrir mig líka !!!! kiss

Ég er búin að vera æfa mig fyrir komu bumbubúans hennar Bryndísar. Ólöf er búin að vera dugleg að koma með Köru beuty og ég leyfi Ólöfu bara að skrappa í friði á meðan ég sé um barnið. Hún fær hana rétt til að gefa henni þar sem að ég treysti mér ekki alveg í það.

Allavega best að reyna að finna sér eitthvað að gera.

Ingibjörg
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Vinna vinna vinna

13. september 2006 klukkan 14:14
Jæja þá er mín komin á fullt í nýju vinnuna.

Þetta er búið að ganga ágætlega. Ég fékk 2 klukkutíma æfignu áður en gellan sem ég á að taka við af fór til danmerkur. Þannig að þetta tók smá tíma og mikið af klúðri til þess að ná þessu rétt. Ég er orðin svona ágæt í þessu núna. Ég spyr stelpurnar í kringum mig allavega bara 10 sinnum á dag núna.

Alla seinustu helgi var ég svo að þýða fyrir pabba, tilboðsskýrslu í byggingu frystikerfis!! Spennnnóóó. eh nei. En ég fékk pening sem bjargar mér út mánuðinn. Svo er ég náttúrulega líka að vinna í skrapbúðinni. Var með námskeið fyrir álftanespíurnar seinasta sunnudag og það gekk mjög vel. Svo er ég að fara vinna á fimmtudaginn og laugardaginn. Svo er það spurning um að fara að byrja á lesefninu fyrir þennan eina áfanga sem að ég á eftir en er ekki að nenna að taka ;(

Kannski að ég reyni að troða inn smá tíma fyrir félagslíf!!!
Ingibjörg
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Mín kominn með vinnu

06. september 2006 klukkan 18:48
Jæja bæ bæ Fjarðarkaup

Halló Fedex.

Jæja loksins er mín kominn með vinnu... Heiða gella reddaði mér.
Ég er sem sagt að vinna hjá Fedex hraðflutningum í farmaskráningu og tollaskýrslugerð sem ótrúlegt en satt er mun skemmtilegra en það hljómar. Fyrsti dagurinn er í dag og er ég hérna við skrifborðið mitt og tölvuna mín að skrifa þetta blogg.

Svo verð ég að vinna líka í scrap. Þýða fyrir pabba og ekki má gleyma að klára þennan eina áfanga sem ég á eftir til þess að klára BA gráðuna

Kveðja
Ingibjörg
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Mín kominn á heilsulind

22. ágúst 2006 klukkan 18:17
Jæja þá er bara búið að leggja mína inn!! Tala af sér

Í gær hófst morguninn á atvinnuviðtali hjá Atlantsolíu sem fór mjög vel, vona að ég fái það starf. Hef nefnilega ákveðið að taka mér smá hvíld núna eftir Ba ið og sjá til hvað mig langar til þess að verða þegar ég verð stór.

Síðan klukkan tvö keyrði ég í blá lónið þar sem að ég skráði mig inn og fékk þetta geggjaða tveggja manna herbergi með öllu. Ég er bara ein í því. Felst meðferðin í því að fara tvisvar í lónið á dag í minnsta lagi klukkutíma hvort skipti.  Svo er það bara nóg af afslöppun og slökun. Ekki slæmt.

Á mínótunni sem að ég skráði mig inn byrjaði að rigna Gráta og það rignir enn. En oh well það er víst bara þannig.  En á milli þess að fljóta í lóninnu þá les ég og horfi á flakkarann minn. er búinn að vera undirbúa mig í langan tíma og er með nóg af sjónvarpsefni. Svo tók með mér skrappið ef mér skyldi leiðast.

Allavega kominn tími á svamml númer tvö
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Nýtt líf, Árekstur og Gæsun

30. júlí 2006 klukkan 21:36
Jæja ótrúlegt en satt en þá hefur nú bara þó nokkuð drifið á daga mína síðan seinast!!!!

Fyrst og Fremst bumbuprinsessa Ólafar og Ægis kom í heiminn laugardaginn fyrir viku. Ég dreif mig á þriðjudegiunum í heimsókn og fékk að máta dömuna. Jihh ekkert smá sæt!!! Eggjastokkarnir hjá moa fóru alveg á fullt. Svo hefur unga daman fengið nafn:
Kara Margrét Ægisdóttir sem að mínu mati er ekkert smá töff, fallegt og örðuvísi.

Svo var það föstudaginn seinasta að ég fékk símhringingu upp í FK frá Bryndísi þar sem að hún sagði mér að flutningabíll hafði farið inn í ökuhliðina hjá henni!!! Ég fékk náttúrulega vægt sjokk og spurði hvort að það væri örugglega ekki í lagi með hana og barnið og hún sagði að svo væri. Ég hringdi í mömmu og mamma dreif sig á staðinn . Þegar mamma kom á staðinn þá var löggan kominn og var að taka skýrslu og erum við alveg viss á því að Bryndís erði dæmd í 100% rétti þar sem að það var bakkað inn í hliðina á henni. Hún var á Yarisnum mínum og það þarf líklegast að skipta um hurð! Mamma fór með Bryndísi strax til læknis þar sem allt var athugað og má hún ekki vinna næstu daga þar sem að hún fékk ágætis hnykk á bakið.

Svo á lagardeginum var loksins komið að því eftir margra vikna planing að gæsa hana Sigrúnu frænku.
Kærastinn hennar Vilborgar sótti hana á Lagardaginn klukkan þrjú og afhenti henni klæðnað til að vera í, var þar iinni bolur sem á stóð: seinasti séns og kóróna með slöri ásamt þeim ljóstustu stuttbuxum sem ég hef séð í langan tíma. Síðan var henni skutlað í heiðmörk þar sem að hún þurfti a leita að okkur. Eftir að hafa fundið okkur þá var hellt í hana kampavíninu ásamt því að skálað var henni til heiðurs.
Síðan var farið í Noatún og hún látin kaupa smokka og banana en þeir áttu ekki smokka og þá fór hún Sigrún og kvartaði undan því við starfsfólkið. Síðan var farið með hana í tívolíið þar sem að hún skellti sér í kúluna og fleiri tæki ásamt því að innbyrgja þó nokkuð magn áfengis.
Síðan var farið út að borða á Carusó þar sem að við fengum sér herbergi með 12 manna borði og þetta var ekkert smá geggjað vorum þar í 2 tíma og tjatti og góðum mat. Síðan var haldið á kaffi Aróma í heitt kakó og ís þar sem að meiri hluti gesta stóð í óléttu, mjólkurgjöf og með börnin sín í pössun.
Þar fékk Sigrún gefns sokkaband og síðan var haldið heim, þar sem að Pétur og Daníel biðu spenntir eftir fréttum af því hvað fór fram.

Í næstu viku er svo útborgun og verslunarmannahelgi. Geggjuð vinnuvika framundan en síðan langt og gott frí sem að ég og Bryndís ætlum að slappa af, fara á Pirates 2 og og sukka. Húff ég get ekki beðið. Svo í þar næstu viku byrja ég í þjálfun í nýrri vinnu!!! hva hva hva Ingibjörg að fara vinna annars staðar... Er heimsendir í nánd? Er verið að loka FK? Hvað er að gerast? En ég fer ekki langt ... er að fara vinna á laugardögum í vetur í Scrap búðinni sem er staðsett í FK .. ekki sömu eigendur en ég er þó loksins að fara hætta í FK. Verð þar allavega í vetur á laugardögum.

Þangað til næst
Ingibjörg örlítið þreytt eftir viðburðarríka viku

Ingibjorg Groa Magnusdottir

Long time no see

17. júlí 2006 klukkan 19:20
Ég veit ég veit langt síðan ég hef bloggað. En þið  misstuð ekki af neinu. Ekkert nýtt að frétta á þessum bæ.

Er reyndar byrjuð í Bláa Lóns húðmeðferð sem er vægast sagt sú þægilegasta og skemmtilegasta meðferð sem ég hef nokkru sinni farið í. Svammla bara um á kútum með róandi hugleiðslu tónlist á fóninum. Allt í boði ríkisins eða skattpeninga almenningsin þannig að ég segi nú bara takk fyrir mig kæra fólk.

Ég skellti mér í heimsókn til Nönnu, Hennings og Nínu sem eru þessa stundina stödd á landinu, ekkert smá gaman að hitta þau aftur.

Svo síðastliðin föstudag var ég í eins árs ammæli hjá elsku sætu Dagnýju Rós sem er eitt af  mestu krúttum í heimi.

Annars er ekkert meira að frétta og þar sem að ég er á leiðinni í lónið þá segi ég bara bless bless
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Hæ hó og jibbí jey og jibbí jey það er komin sautjándi Júní

17. júní 2006 klukkan 17:08
Hjá mér hefur 17 júní verið dagur þar sem að ég hef tekið því rólega. Allavega seinasta áratuginn en þar áður var maður náttúrulega á ímyndunarfylleríi niðri í miðbæ. Svo þegar af manni eltist hvolpavitið  þá fór maður að djamma á sextándanum eða þangað til að ég og Bára vorum handteknar fyrir að vera ekki með skilríki í sígópásu fyrir utan svörtu pönnuna. Vorum búnar að vera á rúntinum með Gauta og silfurlitaða eclipsinum sem síðan skildi ekkert hvert við hurfum þegar við vorum handteknar og látnar dúsa í fangaklefa með öfurölvuðum unglingsstúlkum og einum róna sem var stöðugt að skvetta á okkur rakspíra.

Eftir þessa reynslu þá var sextándajúnídjammið eiginlega bara búið og síðan þá hefur maður bara verið rólegur yfir þjóðhátíð okkar íslendinga. En núna er sautjándinn á Laugardegi og núna ætlum við Bára sko að lyfta okkur út en passa okkur á því að vera með skilríki á okkur þetta skiptið. Ætlum við túttur á klúbbakvöld á Nasa. Ef einhverjir aðrir sem langar til þess að hitta mig í kvöld þá er um að gera að senda mér bara smáskilaboð eða hringja i aften.

Þangað til næst
Ingibjörg
Ingibjorg Groa Magnusdottir

Sjónvarpsþáttur vikunnar

Medium sería 2
Law and order SVU sería 1

Lestrarbókin

Leshefti í þættir úr sögu mennignarfræðinnar. Oj

Tónlistin

Var að fatta Mugison, snilldar gæji.

Könnun

Hvernig líst þér á?